Ultratone

Ultratone líkamsmeðferðir:

Ultratone teymið voru þau fyrstu sem komu með rafeindatæki á markaðinn fyrir 40 árum til grenningar, styrkingar, fegrunar, uppbyggingar og læknismeðferðar.
Ultratone Futura Plus er nýjasta kynslóð þessara tækja og býður upp á 44 mismunandi meðferðir fyrir andlit og líkama sem eru ætlaðar bæði konum og körlum þó eru mismunandi meðferðir fyrir hvort kynið.

Grenning

Sentimetrarnir hratt í burtu (Instant Inchloss Ultrafast)
Skjót sentimetra minnkun eftir aðeins eina meðferð. Víxlverkandi bylgjuformin losa þig við umframvökva, þjappa saman fitu, þétta vöðva og sýna þannig tafarlausan árangur.

Grenning og þyngdartap (Slimming and Weight Loss)
Sérhönnuð Bioptic meðferð sem örvar efnaskipti og brennir umframfitu á meðan hún endurmótar líkamann, stinnir lausa og slappa húð, mótar vöðva og losar líkamann við eiturefni.

Burt með appelsínuhúð (Anti Cellulite)
Ákveðin röðun boða brýtur niður harða og mjúka appelsínuhúð, losar hana út um blóðrásar og sogæðakerfið og setur hana um leið í það form að vöðvarnir geti nýtt hana sem orku.

Svuntuaðgerð án skurðaðgerðar (Lypolisis/ Fat to muscle)
Þessi meðferð minnkar fitu og byggir upp vöðva á þeim svæðum þar sem fita hefur safnast fyrir og erfitt er að vinna bug á. Hentar sérstaklega vel fyrir „svuntu“ svæðið.

Grenning eftir barnsburð (Postnatal Slimming)
Minnkar fitu, grennir og mótar líkamann eftir barnsburð. Áherslusvæði eru magi, rass og læri. Líða þurfa 6 vikur frá barnsburði þar til hefja má meðferð (3 mánuðir eftir keisara).

Mótun

Almenn líkamsmótun (Workout)
Þétt og góð raðbundin örvunin byggir hratt upp vöðva, bætir lögun þeirra, eykur hreysti og styrk og býr þannig til lögulegri og heilbrigðari líkama.

Mótun djúpvöðva (Deep Muscle Tone)
Meðferðin nær til vöðva sem venjulega er ekki hægt að ná til með hefðbundinni líkamsrækt. Með því að ná í sömu meðferðinni til slíks fjölda líkamsmótandi djúpvöðva, er árangur af mótun bæði betri og gerist á mun skemmri tíma en áður.

Húðstrekking og mótun (Skin Lift and Tone)
Örvar markvisst húðlögin til að endurheimta fyrri teygjanleika húðarinnar. Hvetur til elastin og collagen framleiðslu húðarinnar sem aftur stuðlar að heilbrigðri, þéttri og áferðarfallegri húð. Hentar vel fyrir þá sem hafa t.d. tekið af sér mörg kíló en eiga í vandræðum með að láta húðina fylgja með.

Brjóstalyfting án skurðaðgerðar (Bust Lift)
Sérhönnuð röðun rafbylgjanna mótar, lyftir og styrkir brjóstvöðvana. Meðferðin vinnur að yngingu húðarinnar í kringum brjóstin og ýtir undir fallega og vel mótaða áferð þeirra ásamt því að gera skoruna aðlaðandi. Unnið er með brjóstasvæðið, efri part baks (vinnur gegn fellingum undir herðablöðum og höndum) og upphandleggi. Algengt er að konur taki andlitslyftingu samhliða þessari meðferð.

Mótun eftir barnsburð (Post Natal Toning)
Lyftir, þéttir, mótar og styrkir magavöðva og mjaðmasvæði eftir barnsburð. Líða þurfa 6 vikur frá barnsburði þar til hefja má meðferð (3 mánuðir eftir keisara).

Mótun mjaðmasvæðis (Pelvic Floor Toning)
Styrkir, þéttir og yngir upp vöðvana í mjöðmum og mjaðmagrind (t.d. grindarbotn, sem vinnur gegn þvagleka). Endurheimtir teygjanleika og styrkir mikilvæg líffæri hjá bæði þroskuðu fólki og svo þeim sem eru í mikilli kyrrsetu.

Útgeislun og yfirbragð (Posture)
Mótar og styrkir vöðvana sem stýra stöðu líkamans (axlir, bak, magi og rass). Styrkir jafnvægi og limaburð auk þess að losa um streitu og gefa unglegra og þokkafyllra yfirbragð.

Detox hreinsunarmeðferðir

Sogæðakerfið hreinsað og örfað (Lymphatic Drainage)
Vöðvarnir umhverfis sogæða punktana eru örvaðir. Það hvetur til góðrar losunar gegnum sogæðakerfið en það er það kerfi líkamans sem skolar út eiturefnum og dregur úr vökvasöfnun, sem oft á sér stað m.a. um ökkla- og kviðsvæðið. Nauðsynlegt er að vera nálægt salerni eftir að þessi meðferð er tekin því þeim ferðum fjölgar til muna fyrst á eftir.

Afeitrun og hreinsun blóðrásakerfis (Detox and Circulation)
Hjálpar líkamanum að afeitra, flytja á brott úrgang og hvetja til aukinnar súrefnisupptöku og skilvirkara blóðflæðis. Kjörið til að byrja á eftir kyrrsetutímabil, lélegt mataræði, óhóflegt magn áfengis eða svefnlausar nætur.

Húðin endurvakin (Dermal Rejuvenation)
Blæs nýju lífi í húðvefi sem hafa orðið fyrir skemmdum, m.a. slit eftir þyngdaraukningu eða barnsburð, öldrunar og eftir bruna t.d. af völdum sólarljóss.

Nudd (Massage)
Meðferðin samanstendur af djúpum, grunnum og meðalgrunnum strokum í gegnum slakandi bylgjur sem raðað er upp þannig að tilfinningin er eins og að einhver sé með hendurnar á líkamanum að nudda. Í þessum tíma er sogæðakerfið örfað og felst endurnæringin í því að losa um spennu, streitu, verki og þreytu.

Burt með streituna (Anti Stress)
Framleiðsla endorfíns er örfuð með því að blanda saman tíðum púlsum og örbylgjum sérstaklega hönnuðum fyrir þessa meðferð. Sefar og róar líkamann og gefur endurnærandi og spennulosandi upplifun.

Íþróttaþjálfun

Hraði (Speed)
Eykur viðbragð hraðvirkra kippvöðva (fast twitch muscles) sem framleiða sprengikraft. Kjörið fyrir spretti og hraðar íþróttir eins og tennis, skvass og skíðaiðkun, svo dæmi séu nefnd.

Þrek (Power)
… vantar lýsingu.

Styrkur (Strength)
Bætir styrk vöðvanna og hæfileikann til að lyfta þungu án þess að ofreyna þá eða setja á þá of mikla spennu.

Úthald (Stamina)
Hefur áhrif á upptöku orkuefna í vöðvunum og eykur þannig úthald í íþróttum. (Increases stamina and resistance to fatigue, helping to improve slow oxidative (S.O.) red muscle fibre and fast oxidative/glycolytic (F.O.G) medium muscle fibre for improvement of energy levels.)

Þol (Endurance)
Fullkomnar þolþjálfun með aukinni uppbyggingu vöðvatrefja fyrir úthaldsíþróttir eins og langhlaup, fjallgöngur og skíðagöngur.

Líkamsrækt (Body Building)
Eykur stærð, styrk, umfang og lögun stoðvöðva líkamans þar til mælanlegu markmiði er náð.

Teygjur (Stretching)
Hámarkar teygjanleika útlima og eykur hreyfigetu þeirra með því að toga vöðva í vöðva og vöðva ekki í vöðva örfun (hjálp !) (Maximises limb flexibility and range of movement by enhancing muscle elasticity with agonist and antagonist stimulation)

Bati (Recovery)
Flýtir fyrir bata þegar vöðvar hafa slappast eða meiðst vegna langvarandi rúmlegu eftir veikindi og/eða eftir ákafar og kappsfullar íþróttaæfingar.

Ýmsar aðrar meðferðir

Aðeins framkvæmdar þar sem faglærður aðili starfar.

Há spenna (Hi tens)
(The program uses a mixture of high frequency low pulse width signals commonly called „gate TENS“ to block acute pain and mask discomfort.)

Lág spenna (Low tens)
(The low frequency with short pulses help stimulate the production of endorphins, which are naturally present in the body thus producing a chemically anaesthetising effect.)

Blönduð spenna (Mixes tens)
(Alternates the two types of TENS to maximise the pain relief.)

Endurhæfing (Rehabilitation)
Samlagar virkan vöðvasamdrátt með öðrum samverkandi þáttum eins og breytingum á grunnbrennslu og blóðflæði, vefir í kringum sinar endurnýjast eftir meiðsli.

(Cappillarisation)
(Produces functional vasodilation and thus an instantaneous improvement of blood flow, ideal prior to a long haul flight to increase circulation and reduce oedema.)

Punktanudd (Acupressure)
(Deep penetrating fine currents are used to stimulate and rebalance the body in the selected acupressure areas, thus unblocking the pathways and allowing energy to flow freely along the meridians.)

Svæðanudd (Refloxology)
(With the Futura Pro Refloxology Program, Micropads are placed on selected areas of the foot or hands. Then the Program automatically sequences through a stimulation session for enhanced and concentrated results.)

(Anti Spasm)
(This program has been devised to release muscle spasm and to help restore suppleness to tight and tense muscles.)

Andlitsmeðferðir

Hentar bæði fyrir dömur og herra

Andlitsmeðferðir eru í boði bæði fyrir dömur og herra. Meðferðin tekur mið af húðgerð þinni, bæði litarhafti og rakastigi. Gefðu þér um 25 mínútur í tímann, meðferðin sjálf tekur 15 mínútur og tekur alltaf nokkrar mínútur að raða á og taka af. Flestir taka þessa meðferð samhliða líkamsmeðferð en Ultratone Futura Pro býður uppá þann möguleika að taka bæði líkama og andlit á sama tíma án þess að lengja nokkuð heildartímann.

Andlitslyfting (Non surgical facelift)
Þessi samþjappaða meðferð sameinar þéttingu húðarinnar og lyftingu vöðvanna til að strekkja og þétta útlínur andlitsins. Andlitsvöðvarnir þjálfast og lyftast, það dregur úr rákum, slöpp húð og vöðvar styrkjast og andlitið fær unglegra útlit.

Styrking grunnvöðva andlitsins (Deep Muscle Tone)
Stundum hefur slaknað um of á húðinni og vöðvunum í andlitinu og pokar og fellingar myndast. Þessi meðferð sendir örvunarboð í grunnvöðva andlitsins, sem veldur því að það strekkist mjúklega á þeim og þeir lyftast og styrkjast. Þetta gefur unglegra útlit .

Styrking húðarinnar (Skin Tone)
Þegar vöðvunum hefur verið lyft og þeir styrktir er mikilvægt að styrkja húðina. Þessi meðferð eykur framleiðslu á “elastin” og “collagen”, sem hjálpar til við að þétta húðina og veita henni teigjanleika.

Bjúglosun (Lymphatic Drainage)
Hin lága tíðni sem notuð er í þessari meðferð nuddar andlitsvöðvana mjúklega og örvar sogæðakerfið til að draga úr bjúg og losa út úrgagnsefni. Þetta er rétta meðferðin til að hjálpa húðinni að hreinsa sig og gefur frísklegra útlit.

Dregið úr hrukkum (Wrinkle Reduction)
Þessi meðferð notar mörg mismunandi örvunarboð til að endurnæra húðina, vöðvana og hina ýmsu tengivefi. Hún bætir einnig blóðflæði í háræðum og dregur úr fínum rákum í andliti. Þetta er rétta meðferðin eldra fók, sem þarf langtíma endurnýjum og styrkingu.

Blóðflæði (Circulation)
Þessi milda meðferð er hönnuð til að auka blóðflæði og styrkja háræðarnar. Hún sléttar úr húðinni og hjálpar til við að yngja upp útlitið.

Nudd til að bæta rakastig húðarinnar (Hydrating Massage)
Þessi meðferð er hönnuð til að losa þreytu og streitu úr andlitinu. Notuð eru mild og róandi örvunarboð til að slaka á og endurnæra þreytta húð og andlitsvöðva. Einnig losar þessi meðferð um sæluboðefni (endorfín) og eykur þar með vellíðan.

Viðhald á árangri (Maintenance)
Þegar fullum árangri hefur verið náð er þessi meðferð notuð. Þessi samþjappaða meðferð fer í gegnum öll þau örvunarboð, sem tilheyra hinum sértækari meðferðum.

Hljóðbylgjur

Brjóta niður fitu og vinna á sliti
Hljóðbylgjumeðferðin er afar öflug viðbót í meðferð við harðri fitu sem virðist ekki ætla að fara ! Um leið og hún brýtur niður fituna er hún einnig að vinna að öflugri uppbyggingu húðarinnar og hefur reynst vel við slitum.
Hljóðbylgjur eru teknar á undan líkamsmeðferðinni en á eftir andlitsmeðferðinni og taka 10 mínútur fyrir hvert svæði sem tekið er. Meðferðin er afar öflug og má aðeins fara ákveðið oft í ákveðið langan tíma og svo þarf að taka pásu á eftir. Ekki er ráðlagt að taka fleiri en 3 hljóðbylgjumeðferðir á hvert svæði á ári.

  • Kviður: 2x í viku í 4 vikur og svo pása í 2 mánuði.
  • Rass, læri og upphandleggir: 3x í viku í 4 vikur og svo pása í 2 mánuði.
  • Andlit: 2x í viku í 4 vikur og svo pása í 3 mánuði.
Share