Neglur

Við hjá Fame höfum áralanga reynslu í naglabransanum.
Arna BJörk Bjarnadóttir, naglafræðingur og eigandi Fame, hefur unnið við sitt fag í meira en 10 ár. Jenný Lára Magnadóttir, naglafræðingur til 2ja ára. Við notum eingöngu hágæða efni frá LCN.

Hvað er LCN?

LCN vörurnar eru árangur af langri hefð í rannsóknum og þróun á gervi-kvoðu sem WILDE-Cosmetics hefur staðið fyrir síðan 1914. Upphaflega voru þessar rannsóknir gerðar í þágu tannlæknavísindanna en fyrir rúmlega 20 árum var farið að nýta þessa þekkingu til að framleiða efni í gervineglur.

LCN er framleitt í Oestrich-Wienkel í Þýskalandi og þar fer öll vöruþróun fram sem og rannsóknir, dreifing og stjórnun.
LCN er háþróuð vara sem stenst ströngustu kröfur naglafræðinga og viðskiptavina þeirra um heim allan.

Öll gel frá LCN eru sérstaklega ofnæmisprófuð og hafa yfirburðar “bio compatibility” sem þýðir að fólki, dýrum og umhverfi stafar engin hætta af þeim. LCN notar enga þekkta ofnæmisvalda við framleiðslu efnanna og ofnæmispróf (patch tests) sýna að efnin hafa yfirburðar stöðu þegar kemur að ofnæmi. Það skilur LCN frá öðrum efnum.

Vörulína LCN er einstaklega fjölbreytt og alltaf er hægt að finna samsetningu og lit sem hentar hverjum og einum, hvort sem viðkomandi er með nagaðar neglur, sóríasis eða venjulegar heilbrigðar neglur. Það er jafnvel til sérstakt gel sem hentar fólki með ofnæmi fyrir gervinöglum!

LCN gelið er þeim eiginleikum gætt að það gulnar ekki í sól, ljósalömpum né í daglegri notkun. Hægt er að gera það sama við neglur á höndum og tám. Ef sveppasýking er undir nöglum á tám er til gel sem kæfir sveppinn.

Í LCN vörunum eru einnig til mjög góður handáburður og fótavörur fyrir alla fætur, þurra, sveitta, illa lyktandi, sprungna hæla og sérstakar vörur fyrir fólk með sykursýki sem örvar blóðrásina.

Hvað gerir LCN vörurnar einstakar?:

  • Gelin eru tilbúin til notkunar – engin blöndnun.
  • Gelin eru þróuð úr gervikvoðu sem notuð er í viðgerðir á tönnum.
  • Gelin hafa sveigjanleika á við náttúrulegar neglur.
  • Tekið er tillit til mismunandi þarfa viðskiptavina með breiðri vörulínu.
  • Eru gerðar úr stórum mólekúlum sem komast ekki í gegn um húðina og inn í líkamann.
  • Þær gulna aldrei.
  • Þær eru lyktarlausar.
  • Þær erta ekki húðina.
  • Þær eru ekki eldfimar.
  • Hámarks “bio compatibility”.
  • Það er auðvelt að farga þeim – ekki hættulegar umhverfinu.

lcn

Share