Naglaskóli Fame - LCN
Kennsluáætlun
Kennt er á þeim tíma sem hentar hverjum nemanda fyrir sig. Áætlað er að nemendur mæti að lágmarki 10 sinnum. Eftir það er nemendum frjálst að æfa sig meira í allt að tólf mánuði áður en lokaprófið er tekið. Misjafnt er hve nemendur eru fljótir að ná góðum tökum á gerð gelnagla og geta þeir komið eins oft og þeir kjósa og fylgjast með vinnu kennara eða æfa sig með kennara sér við hlið. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér það vel.
Einnig verður bókleg kennsla sem verður fléttuð inn eftir því sem við á hverju sinni. Nemendur taka bæði verklegt og bóklegt próf. Að prófi loknu útskrifast nemandinn sem naglafræðingur og fær alþjóðlegt diplóma, viðurkennt af LCN í Þýskalandi. Naglafræðingar geta opnað sína eigin stofu, unnið á öðrum stofum ofl.
Sama verð er fyrir alla nemendur, sama hversu oft þeir koma, 190.000 kr. Innifalið í því verði er allt efni sem þarf til, þ.á.m. naglaljós með 4×9W perum.
Öll kennsla fer fram á Fame við Hafnargötu 34, Rnb. en lokapróf fara fram í Heilsu og fegurð, umboðsaðila LCN á Íslandi. Kennari er Arna Björk Bjarnadóttir, naglafræðingur með kennararéttindi frá LCN í Þýskalandi. Henni til aðstoðar verður Jenný Lára Magnadóttir naglafræðingur síðan haust 2007.
- Kenndar eru LCN gelneglur, bæði með og án french manicure.
- Kenndar eru 2 aðferðir til að lengja neglurnar, þ.e. með tipsum og steyptar með formum.
- Kennt er að setja gel á táneglur.
- Kenndar eru lagfæringar, bæði ,,venjulegar” og ,,slæmar” lagfæringar.
- Kennt er að setja gel á eigin neglur án framlengingar.
- Kennt er að lakka fullkomlega og undirstöðuatriði skreytinga.
Markmið er að nemendur þekki undirstöðuatriði náttúrulegu naglarinnar og nauðsyn þess að vernda hana að öllu leiti þrátt fyrir að efni sé sett ofan á hana. Nemendur skulu geta gert fallegar neglur sem endast vel og lagfært neglur í ýmsu ásigkomulagi. Nemendur skulu geta sett gel á táneglur hvort sem þær eru ,,venjulegar” eða ,,gallaðar” að einhverju leiti. Einnig skulu nemendur geta lakkað neglur fullkomlega.
ATH! nemendur verða ávallt að koma með módel með sér í tíma og allt efni (gel, þjalir o.fl.). Nemendur þurfa ekki að koma með vinnuljósin með sér í tíma.
| Tími 1 | Neglur fram-lengndar með tips. | Sýnt verður hvernig neglur eru undirbúnar fyrir gervineglur og ein nögl gerð með tips án french manicure. Nemendur gera svo 1-2 neglur á módel sín eftir því sem tími leyfir.Nóg er að módel komi 60 min. eftir að kennsla hefst. |
| Tími 2 | Neglur fram-lengdar með formum. | Sýnd verður ein nögl gerð með formum, þ.e. framlengingin er gerð með geli, án french manicure. Nemendur gera svo 1-2 neglur á módel sín eftir því sem tíminn leyfir.Nóg er að módel komi 60 min eftir að kennsla hefst. |
| Tími 3 | Naglasett með tipsum. | Nú hafa nemendur æft sig að kappi í 2 vikur og komið er að því að þeir geri heilt naglasett með tipsum án french manicure. Módel koma á sama tíma og nemendur. |
| Tími 4 | Naglasett með formum. | Nú gera nemendur heilt naglasett með formum án french manicure.Módel koma á sama tíma og nemendur. |
| Tími 5 | Neglur með french manicure. | Sýnt verður hvernig ein nögl er gerð með french manicure. Nemendur gera svo 1-2 neglur með french manicure.Nóg er að módel komi um 30 mín. eftir að kennsla hefst. |
| Tími 6 | Naglasett með french manicure. | Nú gera nemendur heilt naglasett með french manicure. Nemendum er frjálst að velja hvort þeir geri neglurnar með tipsum eða formum.Módel koma á sama tíma og nemendur. |
| Tími 7 | Lagfæring. | Sýnt verður hvernig neglur eru lagfærðar án french manicure. Sýnt verður hvernig fiber-borði er settur á illa brotnar neglur o.fl.Í þessum tíma á ekki að koma með módel. |
| Tími 8 | Lagfæring. | Nú gera nemendur heila lagfæringu með french manicure. Best er að módel sé með neglur eftir nemandann sjálfan.Módel koma á sama tíma og nemendur. |
| Tími 9 | Tásur. | Sýnt er hvernig gel er sett á táneglur með french manicure. Svo setja nemendur french manicure gel á allar 10 tásurnar á módel sitt.Nóg er að módel komi 60 mín eftir að kennsla hefst. |
| Tími 10 | Lökkun og skreytingar | Kennd verða grundvallaratriði þess að naglalakk sé rétt sett á neglurnar svo það endist vel og sé fallegt. Einnig verður farið í léttar skreytingar þar sem skrautið er fest bæði í lakkið eða gelið sjálft.Ekki er þörf á módeli í þessum tíma. |
