Þann 1. sept. nk. verður Fame 3ja ára. Fame var formlega opnað þann 1. sept. 2007. En það var á Ljósanótt eins og kannski margir vita.
Í tilefni af því verðum við með smá húllum hæ á Ljósanótt, laugardaginn 4. sept. kl. 13:00 - 17:00.
Við verðum með happdrætti þar sem fólk mætir á Fame, Hafnargötu 34, og skráir sig í pottinn. Dregið verður úr honum á hverjum heilum tíma. Því fyrr sem þú kemur og skráir þig þeim mun meiri eru vinningslíkurnar. Vinningar eru ekki af verri endanum, 5 tímar í Ultratone að verðmæti 15.000 kr.
Við hvetjum strákana eindregið til að vera með þar sem við munum hafa sitthvorn pottinn fyrir hvort kynið og drögum 2 skvísur og 2 gæa
Svo í síðasta úrdrætti, kl. 17:00, drögum við aukavinning sem er nú ekki af slakari endanum, 10 tímar í Ultratone að verðmæti 24.900 kr. Þá setjum við bæði kynin í sama pott, hrærum vel í og drögum einn heppinn
Við munum veita viðurkenningar fyrir góð viðskipti á þeim 3 árum sem við höfum verið starfandi. Höfum valið 2 bestu viðskiptavini til að taka við gjafakortum frá Fame sem þakkarvott fyrir góð og mjög svo ánægjuleg viðskipti.
Á Fame er boðið upp á neglur, naglaskóla og Ultratone. Flestir vita hvað felst í því að fá sér neglur og hvað naglaskóli er. En margir velta vöngum yfir því hvað Ultratone er og verðum við með góða kynningu á því hvað Ultratone getur gert fyrir þig. Endilega kíktu við og fáðu nákvæmar upplýsingar og ráðleggingar um hvað við getum gert fyrir þig.
Að sjálfsögðu munum við einnig svara öllum spurningum varðandi neglurnar og Naglaskólann.
Í boði verða léttar veitingar
Að lokum vil ég þakka kærlega fyrir frábær og ánægjuleg viðskipti á þeim 3 árum sem Fame hefur verið starfandi og hafa verið allt of fljót að líða
